Hugleiðsla og hamingja
10.2.2015 | 15:52
Þessa vikuna stendur tímaritið "Í boði náttúrunnar" fyrir skemmtilegum viðburði undir heitinu "Friðsæld í febrúar" þar sem verið er að gefa fólki kost á að prófa hugleiðslu á mismunandi formi út um allt land. Mjög skemmtilegt framtak. Jóga- og heilsustöðin Andartak tekur þátt í viðburðinum og býður upp á fjörutíu daga sameiginlegt hugleiðsluátak.
Ég hugleiði daglega sjálf og finnst það alveg ómissandi hluti af deginum. Hér á eftir fara nokkrar hugleiðingar um hugleiðslu.
Hugleiðsla er tími með okkur sjálfum, til að endurnærast,finna kyrrðina hið innra og eiga stund með sálinni okkar. Tími til að hlusta, finna aftur taktinn innra með okkur og gefa heiminum fyrir utan frí á meðan. Hún kennir okkur að styrkja hlutlausa hugann svo við getum betur valið viðbrögð okkar og haldið í æðruleysið þegar á móti blæs.


Í hugleiðslu verður hugurinn hreinn og tær og við gefum óendanleikanum rými til að tala innra með okkur. Þannig fáum við fjarlægð á daglegt amstur um stund og í fjarlægðinni virðast þau ekki eins stór og yfirþyrmandi. Þá eigum við það til að sjá lausnir sem við sáum ekki áður.
Best er að hugleiða daglega. Ég mæli með því að byrja á að setja sér það markmið að hugleiða reglulega 40 daga. Þannig sköpum við nýjan vana. Fyrst mótum við vanann og svo mótar vaninn okkur. Samkvæmt jógafræðunum tekur það 40 daga að brjóta upp venjur sínar, 90 daga að búa til nýjan vana, 120 daga að festa nýja vanann í sessi og 1000 daga að verða meistari yfir nýja vananum.
Við erum öll mismunandi upplögð frá degi til dags, suma daga er meira álag en aðra, suma daga erum við sátt við lífið og aðra ekki, en ef við höldum áfram í gegnum allar þessar innri og ytri sveiflur að setjast niður, kyrra hugann og eiga samtal við sálina okkar þá sköpum við smám saman nýjan vana sem styður okkur þegar á reynir og þannig kennum við huganum að þjóna okkur í stað þess að vera þrælar hans.
Í jóga- og heilsustöðinni Andartak bjóðum við reglulega upp á sameiginlega 40 daga hugleiðslu sem fólk gerir ýmist með okkur í jógatímum eða heima hjá sér. Hægt er að taka þátt í henni hvar sem er á landinu. Við erum einmitt að byrja á einni slíkri í þessari viku og það er ekki of seint að byrja núna
Hugleiðsla hreinsar undirvitundina og áruna okkar. Okkur finnst öllum sjálfsagt að fara reglulega í bað. Það er jafn mikilvægt að hreinsa hugann annars verður hann ofhlaðinn. Regluleg hugleiðsla er eins og góður vinur sem nærir okkur og gefur góð ráð.
Rannsóknir hafa ítrekað sýnt fram á jákvæð áhrif hugleiðslu og aukna hamingju þeirra sem hugleiða reglulega. Það hefur til dæmis verið sýnt fram á að við erum öll með ákveðna staði í heilanum fyrir jákvæðar og neikvæðar tilfinningar. Þeir sem hugleiða reglulega virðast virkja meira þann hluta heilans þar sem við upplifum jákvæðni og almennt finna fyrir meiri hamingju.
Í öllum hraðanum og áreitinu sem við flest búum við er ómissandi að geta átt nærandi stund með sjálfum sér og að hreinsa út úr huganum svo við getum komið fersk og ný að verkefnum líðandi stundar og átt innihaldsríkari samskipti við okkar nánustu.
Njóttu hugleiðslunnar. Ef þú sinnir henni daglega og leyfir þér að upplifa hana þá verður hún að gullnum þræði sem tengir þig við óendanleikann. Yogi Bhajan
Andartak jóga- og heilsustöð gudrun@andartak.is
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fyrst skapar þú vanann og svo skapar vaninn þig
8.1.2015 | 01:10
Fyrst skapar þú vanann og svo skapar vaninn þig. Þú ert það sem þú endurtekur. Það sem þú gerir aftur og aftur ómeðvitað styrkir meðvitundarleysi" og slæmu og óhollu venjurnar þínar. Það sem þú endurtekur meðvitað og reglulega styrkir góðu og hollu venjurnar þínar. Góðu venjurnar styrkja þig í að verða betri manneskja, að vaxa og upplifa þig sem sterka manneskju.
Okkur hættir til að láta jólafríið setja okkur úr takti og þá missum við stundum út góðu venjurnar. það getur verið sérstaklega mikið átak að koma sér af stað og finna taktinn aftur í byrjun árs.
Það er átak fyrir flesta að breyta venjum sínum og mikilvægt að koma sér upp stuðningsneti og leiðum sem styðja og styrkja okkur í að viðhalda þeim. Mér finnst oft gott að byrja á að fjarlægja úr umhverfinu það sem viðheldur gömlu venjunum. Ef ég held til dæmis áfram að kaupa súkkulaði eftir jólafríið þá verður eiginlega ómögulegt fyrir mig að borða það ekki - sem er kannski ekki vandamál ef ég get stoppað.
Það er líka mjög gagnlegt að koma sér upp reglu í lífinu. Að vakna alltaf á svipuðum tíma og helst að fara snemma að sofa og vera ekki að vinna frameftir. Mér finnst líka mjög gott að koma mér upp ákveðinni rútínu. Ég er með ákveðna morgunrútinu sem hjálpar mér að fara endurnærð út í daginn, Ég byrja daginn á hugleiðslu sem ég geri alltaf áður en ég fer fram úr rúminu. Svo ber ég á mig olíu og fer í sturtu áður en ég fæ mér morgunverð. Olíunuddið mitt á morgnana endurnærir mig alltaf - sama hversu þreytt ég er þegar ég vakna. Þegar ég fer þannig út í daginn verður dagurinn miklu auðveldari og skemmtilegri en annars. Og ég er líklegri til að sýna sjálfri mér og öðrum þá alúð sem við eigum öll skilið.
Ég hugleiði yfirleitt alla daga og mér finnst það vera akkerið í lífi mínu. Dagleg hugleiðsla gefur mér svör þegar mig vantar góð ráð - svona eins og að fara til góðs ráðgjafa sem allt veit. Hugleiðslan mín gefur mér líka tilfinningu fyrir því að ég tilheyri einhverju stærra - og ég verð hamingjusamari. Og mér finnst hún gefa mér stöðugleika í taugakerfið - svona eins og ég verði stöðugri innra með mér. Auk þess sem öll samskipti við mína nánustu verða ánægjulegri. Semsagt ómissandi lífsförunautur. Ég hef samt ekki alltaf hugleitt daglega og þegar það hefur dottið út hefur það oft tekið dálítið á að byrja aftur.
Mér finnst það ómissandi að fara reglulega í jóga. Jóga kennir mér og minnir mig á að hlusta á sjálfa mig - að fara ekki fram úr mér - og fær mig til að langa til að koma mér upp heilnæmum venjum. Og þar finn ég líka félagsskap fólks sem hefur frekar uppbyggjandi áhrif á mig en hitt.
En aðalatriðið finnst mér að muna að vera ekki of hörð við sjálfa mig og skamma mig ekki þó ég falli í gamlar gildrur og missi sjónar á markmiðum mínum. Að gleyma ekki að elska og samþykkja sjálfa mig eins og ég er - þrátt fyrir alla mína bresti.
Guðrún Darshan - Andartak jóga- og heilsustöð gudrun@andartak.is
Bloggar | Breytt 15.1.2015 kl. 11:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Vetrarsólstöður - Ljósið fæðist í myrkrinu
11.12.2014 | 11:26
Á hverju ári þurfum við að mæta myrkrinu og á hverju ári fylgjumst við með því hvernig ljósið fæðist á ný um leið og sólin fer aftur að hækka á lofti. Vetrarsólstöður eru 21. desember og þá er lengsta nótt ársins. Orðið sólstöður vísar til þess að sólin stendur í stað. Hún hættir að lækka á lofti, fer síðan að hækka aftur hægt og bítandi og ljósið sigrar myrkrið.
Vetrarsólstöður eru á kaldasta tíma ársins. Í gegnum söguna hefur veturinn verið tími til að leggjast inn í hýði, tími kyrrðar, depurðar, hungurs, svefns, myrkurs og kulda. Á vetrarsólstöðum fögnuðu mennirnir endurkomu sólarinnar sem lífgjafa og vonargjafa mitt í öllum kuldanum og myrkrinu. Í dag fögnum við fæðingu frelsarans og ljóssins í hjartanu. Í heiðni var þessi hátíð líka kölluð jól. Freyr var guð kærleika og frjósemi, guð árs og friðar. Óðinn átti sér mörg nöfn, þeirra á meðal voru jólafaðir og jólnir. Óðinn stendur fyrir visku og innri styrk, en hann var líka meistari hinna dauðu- drauganna.
Á vetrarsólstöðum og jólum erum við að takast á við myrkrið og tendra ljósið innra með okkur. Til þess þurfum við að horfast í augu við skuggahliðarnar okkar og draugana í lífi okkar. Mér finnst þessi tími ytra myrkurs kalla mig inn á við. Ég hugleiði daglega flesta daga ársins en á þessum árstíma verður það enn auðveldara og mér finnst ég vera nær kyrrðinni. En líka einmitt vegna alls annríkisins í lífi mínu og í kringum mig á þessum tíma þá finnst mér það alveg nauðsynlegt að hugleiða til að halda einbeitingu í verkefnunum og til að halda sjálfri mér í jafnvægi.
Þetta er góður tími til að skoða árið sem er að líða, velta upp hvað við eigum eftir óklárað verkefni, samskipti, áramótaheit síðustu áramóta og einnig til að undirbúa nýja árið. Þetta er líka tími til að njóta þess góða sem myrkrið færir okkur kyrrð, frið og endurnýjun.
Á þessum árstíma getum við byggt upp styrk, hreysti og lífsorku. En þetta er líka tími sem er gott að fara sér hægt, njóta þess að vera heima taka til og gera fallegt í kringum sig. Þetta er góður tími til að taka til í huganum, vinna úr tilfinningum og málum sem við höfum ekki gert upp. Tími til að taka á móti vinum og fjölskyldu, njóta þess að gleðjast og vera saman. Góður tími til að dansa, eiga skemmtilegar stundir og til þess að fara í jóga og hugleiða. Hugleiðsla hreinsar hugann og hjálpar okkur að vinna úr hlutum.
Ayurveda, systurvísindi jógafræðanna kenna okkur að á þessum árstíma sé líkaminn að endurnýja sig og byggja sig upp. Góð næring er því mjög mikilvæg og hreyfing hjálpar líka til við að byggja upp heilbrigðan vef í líkamanum. Létt mataræði er best, en eins og við vitum þá er jólamáltíðin stundum dálítið þung í maga. Þá getur til dæmis verið gott að nota krydd eins og engifer og fennel til að hjálpa meltingunni. Það má t.d. skera þunna sneið af engiferi fyrir matinn setja á hana nokkra sítrónudropa og smá salt. Og tyggja svo vel. Fennelte eða að tyggja fennelfræ eftir matinn hjálpar líka meltingunni. Meltingarensím er hægt að fá í heilsubúðunum.
Vetrarsólstöður og það að lifa með myrkrinu hefur haft áhrif á líf fólks í gegnum aldirnar og hefur fengið fólk til að búa sér til helgisiði sem snérust um að fagna sigri ljóssins og lífsins yfir myrkrinu og kuldanum. Ferðalagið úr dái gleymskunnar yfir í allsnægtir, úr meðvitundarleysi yfir í meðvitund, úr myrkri yfir í ljós sækist seint og krefst þolinmæði. Okkur er boðið að leita inn á við, að leita eftir ljósinu innra með okkur til að lifa af. Við sofum meira, hægjum á okkur og bíðum.
Shakespeare sagði; "Myrkrið á sínar góðu hliðar. Þegar skýin hörfa og stjörnurnar og norðurljósin lýsa upp himininn, þá vaknar hugurinn og við finnum vakna innra með okkur þessa þrá eftir einhverju stærra og meira. Við finnum til smæðar okkar sem einstaklingar og skynjum víddirnar innra með okkur. Megum við öll finna það hugrekki og traust sem við þurfum til að takast á við myrkrið, tengja við ljósið innra með okkur og finna leiðina heim.
Guðrún Darshan Andartak jóga- og heilsustöð gudrun@andartak.is
Bloggar | Breytt 15.1.2015 kl. 17:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Meistaramánuður - áskorun til þín
30.9.2014 | 17:12
Ég kynnti mér nýlega hugmyndina um Meistaramánuð" og komst að því að hún snýst um að hvetja okkur til að taka höndum saman um að víkka út þægindarammann og setja okkur markmið. Það er auðveldara að gera hlutina saman en hvert í sínu horni. Við í Andartaki ákváðum að nota tækifærið og hvetja jógaiðkendur og aðra sem vilja vera með að koma sér upp daglegri hugleiðsluiðkun í Meistaramánuði. Í jóga tölum við um að það taki 40 daga að koma sér upp nýjum venjum.
Ef við ætlum að tileinka okkur nýjan lífsstíl er gott að muna að það gerist ekki á einum degi. Það getur verið ágætt vegarnesti að hafa næga þolinmæði gagnvart sjálfum sér og færast ekki í fang meira en við teljum okkur geta staðið við.
Til þess að taka upp nýja siði þurfum við að sleppa gömlum og oft rótgrónum venjum og taka upp nýjar venjur sem þjóna okkur betur. En gömlu venjurnar urðu ekki til á einum degi.
Venjumynstrum okkar mætti líkja við árfarveg sem myndast við flæði vatns eftir sama farvegi ár eftir ár. Þessi mynstur eru til í undirvitund okkar og mynduðust á löngum tíma. Við endurtökum þessi hegðunarmynstur sjálfkrafa og vegna þess hve þau eru rótgróin í okkur er erfitt að sleppa þeim. Til þess er í raun nauðsynlegt að búa okkur fyrst til nýjar venjur. Það er líka mun skemmtilegra að einbeita sér að þvi að koma sér upp nýjum, jákvæðum og uppbyggjandi venjum en að því að losa sig við slæma og eða niðurrífandi ávana.
Það er mjög mikilvægt að gera hlutina á eigin forsendum að finnast við vera við stjórnvölinn. Þetta er í grunninn spurning um viðhorf. Það verður allt miklu auðveldara ef við tökum sjálf ábyrgð á eigin lífi.
Jóga kennir okkur að hlusta á okkur sjálf og að takast á við hugann. Ef við erum ekki meðvituð um spennuna innra með okkur eða það hvernig okkur líður getur lífið orðið svo innantómt og flatneskjulegt. Jóga hjálpar okkur að nálgast dýptina innra með okkur. Flestir anda til dæmis allt of grunnt. Of grunn öndun veldur streitu, gerir okkur einbeitingarlaus og óöguð. Við hættum að upplifa og njóta og förum að gera hlutina ómeðvitað og án gleði.
Jógaiðkun getur hjálpað okkur að taka upp nýjar venjur. Þegar við lærum að takast á við hugann og förum að slaka meira á fylgir því löngun til að gera fleira sem er gott fyrir okkur. Fyrir hverja nýja og upplyftandi venju sem við tileinkum okkur fylgja yfirleitt margar í kjölfarið.
Dagleg hugleiðsla gefur okkur aukna einbeitingu, dregur úr streitu og kvíða, bætir ónæmiskerfið og eykur sjálfstraustið. Við förum að sjá betur hvert við stefnum og hvað við viljum í lífinu og öðlumst aukið þol fyrir breytingum og erfiðleikum.
Þeir sem vilja taka þátt í áskoruninni geta sent okkur póst á andartak@andartak.is eða bara komið og verið með í fyrstu hugleiðslunni miðvikudaginn 1. okt. kl 16.30 í Andartaki, Skipholti 29A. Hægt er að fræðast meira á Andartak.is
Guðrún Darshan - Andartak jóga- og heilsustöð / gudrun@andartak.is
Bloggar | Breytt 15.1.2015 kl. 17:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hugurinn og hugleiðsla
26.9.2014 | 11:05
Hugurinn er okkar mikilvægasti félagi. Við þurfum að vera í góðu sambandi við hugann til blómstra og lifa hamingjusömu lífi. Jógarnir segja að með því að sigrast á huganum getirðu sigrað heiminn.
Það eru tvær leiðir til að eiga samband við hugann; annað hvort stjórnar þú huganum eða hugurinn stjórnar þér! Ef hugurinn fær að ráða þá verðum við stefnulaus eins og lauf í vindi og förum að láta tilfinningarnar hlaupa með okkur í gönur.
Lífið er ekki undir þinni stjórn og hugurinn ekki heldur. En hugurinn hlýðir einu og það er öndunartakturinn það hversu hratt eða hægt við öndum. Um leið og við hægjum á önduninni þá hægist á huganum. Og líkaminn fer að slaka á.
Við höfum öll þörf fyrir að tengja við óendanleikann innra með okkur annað slagið. Að næra þögnina innra með okkur svo við getum sótt þangað orku þegar við þurfum að takast á við lífið. Sumir gera þetta í gegnum það að hlusta á tónlist, aðrir í gegnum það að fara út að ganga. Hugleiðsla er enn ein leið. Hún hefur þann viðbótarkost að hún hjálpar okkur að hreinsa undirvitundina og gefur okkur virkt samband við hugann. Og það sem meira er þegar við ræktum þannig hugann í gegnum reglulega íhugun, njótum við þess enn betur að ganga og hlusta á fallega tónlist. Í Kundalini jóga er auk þess hægt að sameina þetta allt. Hugleiðsla í kundalini jóga er nefnilega oft gerð í gegnum söng og sömuleiðis er hægt að hugleiða og ganga á sama tíma gönguíhugun.
Hugleiðsla hreinsar undirvitundina og áruna okkar. Okkur finnst öllum sjálfsagt að fara reglulega í bað. Það er jafn mikilvægt að hreinsa hugann annars verður hann ofhlaðinn. Með því að hreinsa undirvitundina reglulega gefum við sjálfum okkur færi á að vinna úr reynslu okkar og takast á við nýjan dag af opnum huga. Hugurinn verður meira skapandi og við förum að geta betur stýrt venjum okkar. Samskiptin við okkar nánustu verða betri og við förum að lifa í stærri og áhugaverðari heimi.
Regluleg hugleiðsla er eins og góður vinur sem nærir okkur og gefur góð ráð. Í hugleiðslu uppgötvar þú heilan heim af þér. Í þeim heimi, í þínu dýpsta eðli er hugurinn þjónn þinn en ekki meistari.
Guðrún Darshan - Andartak jóga- og heilsustöð - gudrun@andartak.is
Bloggar | Breytt 15.1.2015 kl. 17:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ertu að setja sjálfa-n þig í fyrsta sæti?
14.8.2014 | 14:24
Að setja sjálfa-n sig í fyrsta sæti þýðir ekki að gleyma öllum hinum. Ef við munum eftir að sinna okkur sjálfum og gefum okkur stundir til að endurnærast þá erum við meira í stakk búin til þess að gefa af okkur. Það að gefa af okkur er það sem gefur okkur lífsfyllingu og gleði - og gleðinni fylgir frelsi. Frelsi til að vera við sjálf.
Nú fara skólarnir að hefjast og þá kemst allt í sitt fasta form. Stundum eigum við það til að leyfa annríkinu að gleypa okkur og gleymum hvað það er mikilvægt að eiga líka stundir með okkur sjálfum.
Sumarið skartar enn sínu fegursta og leitast við að gefa okkur innblástur af bjartsýni og gleði. Á meðan við undirbúum okkur í huganum fyrir komu haustsins getur verið ágætt að velta því upp hvernig okkur hefur gengið hingað til að flétta saman gleði og skyldustörf. Og hvort það sé ekki kominn tími til að setja sjálfa-n sig í fyrsta sæti:-)
Sumarið gefur okkur stundum tækifæri til þess að hlaða batteríin. Og þá ef til vill að finna hvað það er sem skiptir okkur máli í lífinu. Oft eigum við það þó til að gera of miklar væntingar í sumarfríinu og ætla okkur að gera of mikið. Sem getur jafnvel leitt til þess að við verðum þunglynd og pirruð.
Það er svo mikilvægt að læra að hlusta á okkur sjálf og finna hvað það er sem við þurfum og þráum. Til þess þurfum við stundum að einfalda líf okkar og læra leiðir til að anda og hlusta inn á við. Jóga og hugleiðsla eru afbragðs leiðir til að kenna okkur þetta.
Jóga er fyrir alla. Það geta allir notið þess að stunda jóga sama í hvernig líkamsformi þeir eru og engin þörf á að vera sérstaklega liðugur. Markmið jóga meðal annars er að koma á innra jafnvægi og vellíðan í líkamann svo við getum betur gefið okkur af heilu hjarta í allt sem við erum að gera. Rannsóknir sýna að þeir sem stunda jóga reglulega eiga auðveldara með að ná markmiðum sínum og að njóta þess sem lífið hefur upp á að bjóða.
Nú er jóga- og heilsustöðin Andartak að opna aftur eftir sumafrí og allir velkomnir að kíkja við.
Guðrún Darshan - Andartak jóga- og heilsustöð / gudrun@andartak.is
Bloggar | Breytt 15.1.2015 kl. 17:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Að búa til rými fyrir vorgleðina
4.6.2014 | 17:45
Nú er vorið loksins alveg búið að syngja burtu veturinn og sumarið framundan. Íslenska sumarið er okkur dýrmætt - það varir svo stutt og er fullt af birtu og endurnærandi orku. Vorið er góður tími til að hreinsa bæði líkamann og hugann, að létta á farangrinum sem við burðumst með. Það er svo miklu auðveldara að taka sumrinu opnum örmum með opinn huga.
Við í Andartaki erum búin að eiga dásamlega vorhreinsun saman á námskeiðinu Sterk ára, tær hugur, blómstrandi heilsa. Þar sem við einbeittum okkur að því að fyrirgefa og sleppa, og lifa í núinu í stað þess að halda fast í söguna okkar. Við höfum tilhneigingu til að halda í gamlar sögur, oft erfiðu sögurnar okkar - að segja þær aftur og aftur og þannig halda þær áfram að lifa. Á þennan hátt erum við jafnvel að endurskapa þær. Það er mikill léttir að sleppa gömlum höftum. Við eigum örugglega eftir að endurtaka þetta námskeið það var svo skemmtilegt.
Systurvísindi jógafræðanna - Ayurveda kenna okkur mikilvægi þess að lifa í takti við náttúruna, hlusta á hvað hún hefur að segja og fylgja ráðum hennar. Ayurveda vísindi og viska lífsins- fjalla meðal annars um eiginleika innra með okkur vata, pitta og kaffa - sem við geymum í mismunandi hlutföllum. Þessir eiginleikar lýsa frumöflunum vata er loftið og rýmið innra með okkur, pitta er eldurinn sem drífur meltinguna og skýra kraftmikla hugsun, kaffa er ílátið sem geymir eldinn og vatnið, og gefur okkur festu og kyrrð. Fyrir þá sem ekki þekkja til Ayurveda er hér hægt að lesa meira. Á vorin þurfum við að hugsa sérstaklega vel um kaffa. Þegar kaffa er í jafnvægi finnum við styrk okkar og stöðugleika. Ef kaffa fer úr jafnvægi erum við oft syfjuð eða með sljóan huga og jafnvel þunglynd. Það gæti líka fylgt því aukið slím í lungum eða kinnholum, ógleði og vatnssöfnun eða þungi í útlimum. Það er sérstaklega mikilvægt að koma jafnvægi á kaffa á vorin því kaffa safnast upp á veturna og getur valdið veikindum þegar vorið kemur. Vetrinum fylgir kuldi og raki og þá speglum við þessa eiginleika í okkur sjálfum og höfum tilhneigingu til að borða og sofa meira, sitja inni og búa okkur þannig til vetrarkápu til að einangra okkur gegn kuldanum. Á vorin þurfum við að varpa af okkur þessari kápu af kaffayfirflæði annars eigum við það á hættu að fá vorkvef og alls kyns ofnæmi eða við gætum fundið fyrir framtaksleysi og tilfinningaþyngslum.
Meðal vorsins samkvæmt þessum aldagömlu vísindum er að búa sér til takt og rútínu fyrir daginn sem hjálpar okkur að létta okkur líkamlega, huglægt og tilfinningalega án þess að trufla stöðugleika kaffa. Best er að nálgast þetta frá mörgum hliðum: Borða létt fæði, hreyfa sig fara út í náttúruna. Jóga er mjög gagnlegt á þessum tíma og þá ekki síst öndunaræfingar og hugleiðsla. Í kundalini jóga er fullt af kríum sem hreyfa við orkunni og opna orkuflæðið.
Guðrún Darshan. Andartak jóga- og heilsustöð / andartak@andartak.is
Bloggar | Breytt 15.1.2015 kl. 17:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ósýnilegir töfrar lífsins
22.4.2014 | 10:45
Við erum öll með áru eða rafsegulsvið í kringum okkur, hvort sem við skynjum hana eða ekki. Áran gefur okkur næmni og vernd. Í gegnum það að skynja áruna okkar getum við líka lært að skynja fíngerðari víddir í okkur sjálfum. Sterk ára verndar okkur og gefur okkur geislandi nærveru.
Árið 2014 er samkvæmt jógískri talnaspeki ár árunnar. Áran tengist tölunni sjö- en hún fæst með því að leggja saman tölurnar í árinu þversumman af 2014 er sjö.
Jógísk talnaspeki á rætur sínar í fornri speki jógafræðanna og var þróuð áfram til að hjálpa okkur að skilja betur lífsferðalag okkar, styrk okkar og veikleika og hvernig við getum nært sambandið við okkar innra og æðsta sjálf.
Kundalini jóga býður upp á virk tæki til þess að nýta talnaspekina á praktískan hátt. Í gegnum það að þekkja tölurnar okkar getum við styrkt veika þætti í okkur sjálfum og nært styrkleika okkar með jógaiðkun og hugleiðslu.
Talan sjö í Kundalini jógafræðunum stendur eins og áður sagði meðal annars fyrir áruna okkar. Áran gefur okkur vernd og næmni fyrir umhverfinu. Þegar við lifum hratt og gefum okkur ekki tíma til að upplifa og vinna úr hlutum þá verður hugurinn ofhlaðinn og það sést í árunni. Áran okkar birtir það sem við höfum ekki náð að vinna úr. Eitt af því sem styrkir áruna er því að fyrirgefa fyrirgefa okkur sjálfum og öðrum hvað sem það er sem við höfum ekki náð að sleppa úr vitund okkar.
Það eflir líka áruna að setja okkur markmið að lyfta huga okkar hærra og gefa lífi okkar tilgang. Og að sjá það sem er og dvelja í andartakinu í stað þess að vera alltaf að leita að einhverju öðru en því sem við höfum - að upplifa í stað þess að vera fangar hugans.
Þetta er ár til þess að skipta út sektarkennd fyrir heilbrigða skynsemi. Að fyrirgefa og tengja okkur þannig á nýjan hátt við fortíðina. Að eiga samband við fortíðina sem er laust við þörf fyrir að amast út í okkur sjálf eða aðra.
Þrátt fyrir að við vitum að enginn annar ber ábyrgð á okkar eigin upplifun þá eigum við það flest til að falla í þá gildru að ásaka aðra og dæma. Og jafnvel þó við finnum ekki fyrir þessum eiginleikum í dag þá eru mynstur þeirra til í undirvitund okkar og í árunni okkar.
Þess vegna þjónar það tilgangi að hreinsa til í huganum og í árunni þar með. Það er ekki síður mikilvægt að hreinsa til í huganum en að baða líkamann. Það er mjög nærandi venja að hugleiða daglega. Það þarf ekki að taka langan tíma. Hægt er td að byrja á 3ja mínútna daglegri hugleiðslu. Hugleiðslan "kirtan kriya" kemur jafnvægi á hugann og á áruna og er mjög aðgengileg fyrir óvana hugleiðsendur. Hér má lesa um hana.
Fyrir árið 2014 er hægt að velja hugleiðslur sem hjálpa okkur að fyrirgefa, hreinsa burtu drauga fortíðarinnar, hugleiðslu fyrir aukinn styrk hugans, fyrir tæran huga og hugleiðslu sem hjálpar okkur að sjá hið óséða og þekkja hið óþekkta.
Ef við gefum okkur það að eiga daglega stund með okkur sjálfum hvaða form sem við veljum að setja henni verðum við sterkari og hamingjusamari.
Það er líka góð iðkun að skrifa og tæma þannig hugann og sjá hugsanir okkar í skýrara ljósi. Til að endurskipuleggja hugmyndir okkar um veruleikann til að hefja okkur upp yfir vandamálin og sjá þau minnka með yfirsýninni.
Lífið er svo ríkt af ósýnilegum töfrum. Ef við reynum að skilja allt og skilgreina þá verður lífið svo grátt og litlaust. Áran og víddirnar innra með okkur tilheyra þessum djúpu óleystu ráðgátum sem við getum notið þess að upplifa og skynja og kannski getum við lært eitthvað nýtt um okkur sjálf og lífið í leiðinni.
Guðrún Darshan - Andartak jóga- og heilsustöð andartak@andartak.is
Bloggar | Breytt 15.1.2015 kl. 17:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Gjöfin að vera kona - dóttir, móðir, amma, gyðja
20.2.2014 | 11:46
Konur eru alltaf að takast á við breytingar í gegnum ævina. Í hverjum mánuði með mismunandi hormónaflæði og í gegnum ævina í þeim mismunandi hlutverkum sem konan gegnir. Dóttir, móðir, amma konur samsama sig mjög sterkt með hlutverkum sínum mun sterkar en karlar gera og þess vegna hafa þessar breytingar mjög djúp áhrif á okkur.
Konur eru í eðli sínu mjög sterkar á annan hátt en karlar. Þær búa yfir ríku innsæi, sköpunarkrafti og tilfinningalegum styrk. Ef innsæið er sterkt þá finnum við ekki til ótta heldur treystum okkar innri leiðsögn og vitum hvert við stefnum. Til þess að nýta þennan innra styrk okkar þurfum við að vera meðvitaðar um hann og geta sótt hann innra með okkur. Þess vegna er öll andleg rækt mjög mikilvæg fyrir konur.
Konur þurfa að næra andann til að upplifa hamingju. Þær geta gert það í gegnum það að vera skapandi, með því að upplifa náttúruna og svo er hugleiðsla mjög holl og góð fyrir konur. Hugleiðsla kennir okkur að skynja dýptina innra með okkur og gefur okkur sjálfstraust. Og hún hjálpar okkur að hreinsa undirvitundina. Konur sækja öryggi sitt í víddina innra með sér og finnst því oft eitthvað vanta í líf sitt þó þær njóti veraldlegs öryggis ef þennan þátt vantar. Ef þær gefa sér ekki tíma eða rými til að næra þetta samtal við vitru konuna hið innra.
Konur hafa í gegnum kvennabaráttuna haft tilhneigingu til þess að reyna að herma eftir styrk karlmanna og reyna að verða sterkar á þeirra forsendum en ekki sínum eigin. Það er hins vegar mikilvægt fyrir okkur konur að læra að átta okkur á hvað það merkir að vera sterkar og halda samt áfram að vera konur - ekki herma eftir þessari ímynd af sterkum karlmanni.
Kona getur haft mikil og jákvæð áhrif í kringum sig ef hún er í góðu jafnvægi en að sama skapi getur hún haft mjög neikvæð áhrif á umhverfi sitt ef hún er það ekki. Þetta getur brotist út sem nöldur eða óánægja þar sem við gleymum að meta það sem við höfum. Þegar kona er neikvæð hefur það margfalt meiri áhrif en þegar karlmaður gerir það af því hún er hjarta heimilisins. Við þurfum að átta okkur á ábyrgðinni sem felst í því að vera kona. Það sem er styrkur konunnar ef hún er í jafnvægi getur snúist gegn henni ef hún er í ójafnvægi og gert hana óstöðuga og óánægða.
Einn af veikleikum konunnar er þegar henni finnst hún þurfa að fá viðurkenningu frá umhverfi sínu í stað þess að meta sig sjálf að verðleikum. Jógafræðin kenna okkur að mótvægið liggi í því að finna til þakklætis.
Kundalini jógafræðin búa yfir miklu flæði af visku fyrir konur um það hvað það þýðir að vera kona um styrk hennar og veikleika, um það hvernig hún getur átt innihaldsríkari samskipti við sína nánustu og um hæfileika konunnar til að skapa sinn eigin veruleika. Eitt af því sem jógafræðin fjalla um sem er mjög heillandi eru Mánasvæði konunnar. Ellefu svæði á líkama konunnar sem eru virk í tvo og hálfan dag í senn. Hverju mánasvæði fylgir ákveðin tilfinning eða tjáning. Mánasvæðin eru ein leið til að skilja þær miklu sveiflur sem konan ferðast í gegnum í hverjum mánuði.
Yogi Bhajan, meistari í Kundalini jóga hafði oft að orði að siðferðisstyrkur hverrar þjóðar birtist í andlitum kvennanna. Hann átti við að þegar karlmenn heimsins bera virðingu fyrir konum og börnum þá yrði friður á jörðinni. Og að þegar konur sýna hver annnarri vinsemd og kærleika þá þorna tárin. Þú heldur kannski að konan sé fótaþurrka við útidyrnar, sagði Yogi Bhajan, en ég held að hún sé hliðið að himnaríki. Þú heldur kannski að konan sé chick (gella / skvísa) en ég trúi að hún sé eins og örn. Þokkafullar hreyfingar hennar halda jörðinni á sporbaug sínum.
Það er afar mikilvægt fyrir konur að leita leiða sem henta hverri og einni til að koma sér í jafnvægi svo hún geti dvalið í styrk sínum, flogið hátt og blómstrað og haft jákvæð áhrif á samfélagið í leiðinni.
Jógafræðin eiga svo sannarlega erindi til kvenna í dag og geta kennt okkur að hlusta og skilja okkur sjálfar betur og finna okkar sanna styrk. Við í Andartaki bjóðum upp á námskeið sem gefa konum færi á að kynnast visku jógafræðanna fyrir konur. Hægt er að lesa nánar um það á heimasíðu Andartaks - sjá hér: Dansaðu, lifðu, hlæðu, elskaðu - og slakaðu á.
Guðrún Darshan Andartak jóga- og heilsustöð gudrun@andartak.is
Bloggar | Breytt 2.2.2016 kl. 13:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Dragðu djúpt inn andann
15.2.2014 | 13:24
Andartakið endurspeglar hugarástand okkar og innri líðan. Lífið býr í andardrættinum - við öndum að okkur súrefni og um leið lífsorku og nærum hugann með djúpum andartökum. Þegar andardráttur okkar verður grunnur þá verður hugurinn og tilfinningar okkar að sama skapi grunnar og yfirborðskenndar og við missum einbeitinguna. Við hættum að njóta lífsins og verðum fangar hugans.
Öndunin er lykill að því að því að ná valdi yfir huganum, stýra viðbrögðum okkar og að glíma við streitu og álag. Meðvituð öndun opnar vitund okkar fyrir því sem bærist innra með okkur - og við förum að njóta andartaksins til fulls.
Streita er stærsta vandamálið í heiminum í dag. Einkenni streitu eru til dæmis kvíði, einbeitingarskortur, neikvæðar hugsanir, hækkaður blóðþrýstingur, lélegt ónæmiskerfi og hraðari öldrun.
Þeir sem stunda jóga reglulega tala um miklar breytingar á andlegri og líkamlegri líðan. Til dæmis tala þeir um að þeir finni síður fyrir skammdegisþunglyndi. Annað sem reglulegir jógaiðkendur tala um er aukin orka, meiri lífsgleði. aukinn hæfileiki til að slaka á.
Streita er ekki sjúkdómur heldur ástand sem er í grunninn mjög huglægt. Ef við ætlum að hafa áhrif á þetta ástand er nauðsynlegt að dýpka andardráttinn. Um leið og við dýpkum andardráttinn þá fylgir hugurinn eftir og dýpkar upplifun sína við förum að finna í stað þess að vera fangar hugans. Förum að taka eftir því sem er í kringum okkur og að beina athyglinni inn á við. Öndunaræfingar eru mjög öflug leið til þess að fá hugann til að slaka á. Það sést í augunum á þeim sem stunda reglulega öndunaræfingar þau fá glampa og lífsorku.
Hér er öndunaræfing sem er um leið hugleiðsla og er mjög gagnleg gegn streitu:
Hugleiðsla fyrir friðsælt hjarta
Sittu með krosslagða fætur og hálsloku á þ.e.a.s. hökuna að bringu án þess að horfa niður. Lokaðu augunum eða horfðu beint fram með augun 1/10 opin.
Settu vinstri höndina á hjartað, lófann flatan upp við brjóstið og fingurna lárétt við gólf í átt til hægri. Hægri hendin er í Gyan mudra (fingurgómar vísifingurs og þumalfingurs snertast og hinir vísa beint upp). Lyftu hægri hönd upp til hægri við þig eins og þú værir að sverja eið. Lófinn snýr fram. Olnboginn slakur við síðuna.
Einbeittu þér að önduninni. Andaðu meðvitað alla leið inn og alla leið út. Andaðu hægt og djúpt inn um nefið, lyftu brjóstinu og haltu loftinu inni eins lengi og þú getur. Andaðu þá frá, mjúkt, hægt og alveg út. Þegar þú hefur andað alveg frá, haltu þá loftinu úti eins lengi og þú getur.
Haltu þessari löngu djúpu öndun áfram í 3-31 mínútu. Ljúktu hugleiðslunni með því að anda djúpt og kröftugt inn 3svar sinnum. Slakaðu á.
Umsögn: Hið rétta heimili fíngerðu orkunnar, prönunnar (lífsorkunnar) er í lungum og hjarta. Vinstri lófinn er staðsettur við eðlislægt heimili prönunnar, og skapar þannig djúpa kyrrð í hjartanu. Hægri höndin sem við tengjum við framkvæmd og skilgreiningu er í móttækilegri, afslappaðri stöðu. Þessi staða handarinnar stendur fyrir frið. Öll líkamsstaðan kallar fram friðartilfinningu. Tæknilega skapar hún kyrrstöðupunkt fyrir prönuna við hjartastöðina.
Í tengslum við tilfinningar skapar þessi hugleiðsla skýra sýn á samskipti og samband þitt við sjálfa-n þig og aðra. Ef þú ert í uppnámi í vinnunni eða í samskiptum við þína nánustu, þá skaltu sitja í hugleiðslunni í 2-15 mínútur áður en þú ákveður hvernig þú ætlar að bregðast við. Gerðu svo það sem hjartað býður. Lungu og hjarta styrkjast einnig.
Þessi hugleiðsla er fullkomin fyrir byrjendur. Hún eflir meðvitund okkar fyrir önduninni og hún styrkir og nærir lungun. Þegar þú heldur andanum eins lengi og þú getur inni eða úti er ekki átt við að gera það svo duglega að þú sért alveg að kafna eða í spennu á nokkurn hátt þegar þú andar aftur.
Þú getur reynt að gera hugleiðsluna 3svar sinnum í 3 mínútur og tekið 1 mínútu hvíld á milli í samtals 11 mínútur á meðan þú ert að byggja upp þol og venjast því að hugleiða. Fyrir lengra komna og þá sem vilja þjálfa einbeitingu og fylla sig af nýrri orku og æskukrafti er hægt að byggja tímann upp í 31 mínútu.
Guðrún Darshan Andartak jóga- og heilsustöð gudrun@andartak.is
Bloggar | Breytt 15.1.2015 kl. 17:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)