Lífsorka og streita
12.1.2017 | 14:42
-Einhver sagði einhvern tíma að það skipti ekki máli hversu lengi við lifum, heldur hversu full af lífsorku við erum í andartakinu. Ekkert okkar vill bara halda lífi. Við viljum finna lífið streyma um æðarnar og leyfa lífinu að finna fyrir okkur.
Í grískri goðafræði er sagt frá Eos, gyðju dögunar og Tithonus elskhuga hennar sem var mannlegur. Eos bað Seif um að gera elskhuga sinn eilífan svo þau mættu njóta eilífrar sælu saman. En Eos gleymdi að biðja um lífsorku og eilífa æsku handa Tithonusi. Svo hann lifði í eilífðinni og var fangi hennar og bað stöðugt um að dauðinn mætti taka hann.
Þetta er sterk lýsing á togstreitunni innra með okkur: löngunin til þess að lifa að eilífu og óttanum við ellina. Við óttumst skortinn á lífsorkunni meira en dauðann. Án lífsorkunnar er lífið bara skuggi tilvistarinnar.
Menning okkar vill fá okkur til að trúa því að lífsorka sé eitthvað sem tilheyri fyrst og fremst æskunni, eitthvað sem við getum fengið til baka með því að taka pillu, drekka orkudrykki eða borða einhvern sérstakan mat. Eitthvað sem við sækjum fyrir utan okkur sjálf.
Jógafræðin kenna okkur að lífsorkan sé hluti af okkur eiginleiki sem tilheyrir vitund okkar. Ekki eitthvað sem við sækjum okkur eða eigum, heldur gjöf sem er alltaf með okkur gjöf sem við getum tekið á móti, nært og sleppt. Það er nóg af lífsorku, við þurfum bara að tengja við hana. Jógaiðkun gefur okkur samband við uppsprettuna innra með okkur og opnar fyrir orkuflæðið.
Lífsorka er ákveðin meðvitund. Lífsorka er mýkt og sveigjanleiki í líkamanum og viljastyrkur. Lífsorka er ástand líkama, hugar og sálar þar sem við getum alltaf gert okkar besta.
Margt getur hindrað flæði lífsorkunnar. Mikilvægir þættir sem viðhalda flæði orkunnar okkar eru til dæmis svefn, regla, nærandi fæða, jafnvægi í vinnu, gleði og jákvæður hugur. Grunnorkan okkar er eins og innistæða í banka. Ef við göngum á hana þarf að gæta þess að hlaða batteríin að nýju. Það er ekki alltaf auðvelt en það er hægt.
Jóga getur byggt upp lífsorku, hreyft við orkunni sem við erum þegar með og losað um hindranir sem stöðva okkur í að finna eigin orku. Takmarkið er að nota orkuna sem er alltaf með okkur. Við getum endurhlaðið orkubatteríin okkar á 15-20 mín. Af því lífsorkan er hluti af okkur.
Streita er kraftur eða áhrifavaldur sem heftir okkur. Við upplifum streitu eða álag þegar innri uppsprettan okkar er ekki næg eða svo stífluð að við getum ekki brugðist rétt eða vel við aðstæðum. Streita getur gert okkur hrædd, kvíðin og reið. Stundum eru viðbrögð okkar undir álagi ekki eins og við myndum vilja hafa þau. Jógarnir segja að 85% af hegðun okkar sé sjálfkrafa og ákvarðist af umhverfi okkar.
Lífsorkan okkar minnkar þegar við hindrum lífskraftinn tökum ekki við honum. Þegar við afneitum tilfinningum okkar og bælum þær í stað þess að deila tilfinningunum og vinna úr þeim. Eins og fljót sem streymir til sjávar þurfum við að tengjast uppsprettunni, annars þornum við upp og hættum að hafa eitthvað til að gefa okkur sjálfum og öðrum.
Það er svo mikilvægt að finna sér leiðir til að endurnærast, hlaða batteríin í öllu því áreiti sem við búum við í daglegu lífi nútímans. Þannig fyrirbyggjum við orkuleysi, svefntruflanir, vöðvabólgu og önnur áhrif af langvarandi streitu og opnum fyrir flæði lífsorkunnar. Að fara út að ganga í hádeginu er góð leið til að skipta um gír á miðjum degi. Í jóga erum við að leyfa okkar eigin lífsorku prönu að endurnæra okkur. Við fáum frið frá skvaldrinu í huganum, tengjum við hjartað og styrkjum um leið sambandið við viskuna innra með okkur.
Jóga og endurnæring í Andartaki. Við bjóðum upp á tvö námskeið reglulega í Andartaki: Lífsorka, hamingja og hugleiðsla. Og Djúpslökun og hugleiðsla
Guðrún Darshan, jógakennari og markþjálfi
gudrun@andartak.is
Bloggar | Breytt 31.10.2018 kl. 20:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýtt ár, nýtt ljós, nýr farvegur
5.1.2017 | 12:37
Nýtt ár markar nýtt upphaf. Ljósið hefur fæðst á ný í myrkrinu, sólin byrjar að hækka á himninum og daginn tekur að lengja smátt og smátt. Við komum aftur til starfa eftir jólafrí, vonandi með endurnýjaða krafta og löngun til að takast á við áskoranir komandi árs. Nýtt ár er þannig tækifæri til að horfa á lífið í nýju ljósi og jafnvel velja og forgangsraða upp á nýtt.
Ef við skoðum árið 2017 út frá talnaspeki þá færir árið okkur nýtt upphaf, fræ sem við sáum, nýja vitund til að vaxa inn í, ný verkefni og nýjar víddir. Árið 2017 er ár til að rækta með þér sjálfstæði að standa á eigin fótum, að vera þú sjálfur. Að sýna þér samkennd og kærleika og bjartsýni á eigin mátt og megin. Og að leyfa ljósinu innra með þér að sjást og skína, ár fyrir vaxandi meðvitund og ljóma.
Hugrekki
Árið 2017 stendur líka fyrir jafnvægi milli hugar og hjarta. Og hugrekki. Upprunaleg merking orðsins hugrekki er að tjá hug sinn að tala frá hjartanu. Það kallar á hugrekki að fylgja hjartanu, að hlusta á sálina og þora að leyfa ljósinu sínu að skína. Þetta ár átt þú valið allt eða ekkert ljós eða skuggi. Hvar viltu vera? Þetta er ár til að gefa þitt besta og uppskera margfalt.
Meðvitund og viðhorf
Meðvitund er skemmtilegt orð. Að vera með vitund. Að vera vakandi. Að heyra það sem skynfærin, hjartað, húðin segja mér. Ég finn það á mér. Ég veit í hjarta mér. Stundum (og allt of oft) eru hugur og hjarta ekki í takti. Hvaða sögu er ég að segja mér í kringum það sem ég upplifi? Ég vil ekki þetta ég vil hafa þetta öðru vísi. Þarna kemur meðvitundin sterk inn. Að vera með því sem ég finn. Vera með því sem er. Ekki því sem huganum mínum finnst að ætti að vera. Þetta erum við að þjálfa í jóga. Að anda inn í það sem er, það sem við finnum.
Þegar vindurinn blæs á móti getum við þjálfað okkur í að dvelja ekki í því sem okkur finnst um vindinn að dvelja ekki í því sem okkur finnst að. Við getum tekið eftir að eitthvað er erfitt og svo valið að anda inn í það. Við getum þjálfað okkur í því að finna til forvitni. Hvað er að vakna í mér? Hvað er ég að læra núna? Kannski er einmitt það sem er erfitt að vekja þig. Kannski er það einmitt eitthvað sem er að beina þér í rétta átt. Kannski er hægt að beina orkunni sem fer í að berjast á móti því sem er í nýjan farveg. Væri það ekki spennandi? Að losa þannig fullt af orku úr læðingi?
Að hlusta á sálina
Við getum þjálfað okkur í að hlusta. Hlusta á hjartað og sálina. Þetta er verðugt verkefni sem við getum orðið betri í með tímanum. Að hlusta með opinn huga, án þess að bregðast við því sem við heyrum, án þess að segja söguna sem hugurinn segir okkur, án þess að hafa skoðun á því sem við heyrum.
Um leið og við lærum að hlusta á þennan hátt lærum við líka þá list að velja hugsanir okkar, taka eftir neikvæðu hugsununum þegar þær koma og beina huganum í nýjan farveg.
Því er það ekki það sem við upplifum sem gefur lífinu gildi? Það sem við finnum þegar við tengjum við aðra og tengjum við lífskraftinn okkar?
Við getum líka lært að forðast það sem tekur okkur úr sambandi við hjartað og býr til djúpa hólfarið sem við festumst í. Leyfa því sem nærir okkur að hafa pláss í lífinu. Mínar uppáhaldsleiðir til að næra mig eru gönguferðir í náttúrunni, að hugleiða, dansa, synda, mála, hlæja. Hverjar eru þínar leiðir?
Guðrún Darshan, jógakennari og markþjálfi
gudrun@andartak.is
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Vetrarsólstöður og töfrar hversdagsleikans
6.12.2016 | 16:50
Vetrarsólstöður og aðventa eru mjög heillandi tími og líka erfiður fyrir marga. Á þessum tíma fylgjumst við með hvernig myrkrið vex og vex, dagurinn styttist og nóttin lengist, þangað til sólin kemst ekki neðar og getur bara byrjað að rísa á ný. Þannig fæðist ljósið enn og aftur í myrkrinu og sólin fer að hækka á lofti. Nýtt upphaf og ný tækifæri.
Á þessum tíma er sagt að blæjan sem aðskilur hinn veraldlega heim frá heimi andanna og andans verði þynnri en venjulega. Að við eigum greiðari aðgang að ljósinu og myrkrinu sem býr innra með okkur og undirvitundinni. Draugasögurnar eru ekki bara til í þjóðsögum Jóns Árnasonar. Við erum líka með drauga innra með okkur í formi gamalla viðbragða og afstöðu til lífsins, gamalla hugsana sem þjóna okkur ekki lengur og sjálfsmyndar sem hefur staðnað.
Þessi tími er því tilvalinn til þess að fara inn í myrkrið innra með okkur og finna ljósið, að horfast í augu við skuggana og skúmaskotin í huga okkar og lýsa hann upp með nýrri visku og nýjum áherslum. Að velja hver við viljum vera og næra þann hluta af okkur sem við viljum standa fyrir. Allt sem við veitum athygli vex og dafnar. Við reitum arfann og sáum nýjum fræjum. Til að sleppa því gamla þurfum við að velja og vökva það sem við viljum fá í staðinn.
Í skóla sonar míns er mjög falleg athöfn á hverju ári í byrjun aðventu þar sem öll börnin ganga eitt og eitt í einu inn í miðjan spíral þar sem eitt kerti logar. Þau kveikja á sínu kerti inni í miðjum spíralnum og ganga svo hljóðlega út aftur og leggja kertið frá sér einhvers staðar á leið út úr hringnum. Þannig ganga þau inn í kyrrðina innra með sér og sækja þangað ljósið til að geta komið með það út í heiminn eins og sólin sem birtist á ný.
Það þarf kjark til að breyta, til að halda áfram að vaxa, til að sleppa því sem við þurfum ekki og opna fyrir nýja hluti. Mikilvægur þáttur í þessu ferli er að sjá fyrir okkur hvernig við viljum hafa lífið, hvað við viljum standa fyrir í þessum heimi, hvaða drauma við viljum sjá rætast. Það getur verið skemmtilegur leikur á aðventu að taka fram liti og blöð og mála árið sem er að líða og nýja árið eða setjast niður í næði og skrifa bréf til stóra sjálfsins síns. Hvaða drauma vilt þú vökva á nýju ári?
Guðrún Arnalds - Darshan - gudrun@andartak.is
Bloggar | Breytt 6.12.2018 kl. 12:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Kanntu listina að slaka á?
19.10.2016 | 22:16
Það að kunna að slaka á er ekki sjálfgefið að minnsta kosti ekki fyrir okkur sem lifum við álag og áreiti nútímalífs. Við erum misviðkvæm fyrir streitu og áreiti en flest eigum við það sameiginlegt að geyma streitu í líkamanum líka þegar dagurinn er að kvöldi kominn og við gefum sjálfum okkur leyfi til að taka lífinu með ró. Þetta er oft djúpt liggjandi spenna í taugakerfinu sem erfitt getur verið að ná í og fá líkamann til að slaka á.
Í flestum tilfellum erum við ekki meðvituð um nema hluta af þeirri spennu sem við geymum i líkamanum. En eins og með allt annað getum við endurheimt hæfileikann til að slaka á eins og við getum þjálfað aftur upp vöðva.
Heilabylgjur og slökun
Taugafrumur í heilanum senda frá sér bylgjur á mismunandi tíðni - og þannig er hægt að mæla stig slökunar. Þegar við erum vakandi sendir heilinn frá sér Beta-bylgjur. Flest okkar erum í beta ástandi þegar við erum að hugsa. Alfa bylgjur koma þegar við erum slök. Þær eru taldar hjálpa okkur að græða líkama og huga. Ef við slökum aldrei á, þá eru streituhormón í stöðugri virkni og hæfileiki okkar til að læra og vera skapandi minnkar. Þeta bylgjur koma þegar við erum í djúpum svefni, eða mjög djúpri slökun eða hugleiðslu. Þær hjálpa okkur að læra, vaxa og græða líkama og huga. Delta bylgjur eru líka til staðar þegar við erum sofandi eða meðvitundarlaus eða í djúpu hugleiðsluástandi. Gamma bylgjur koma fram þegar við erum óvenjulega vakandi og næm fyrir umhverfi og upplýsingum.
Djúp slökun og hugleiðsla geta aukið magn af alfa bylgjum og með aukinni þjálfun einnig aukið tíðni delta, þeta og gamma bylgna. Í kjölfarið verðum við hæfari til að takast á við álag, líkamleg og andleg heilsa okkar eflist og það verður auðveldara fyrir líkamann að græða og vinna úr hlutum sem hrjá okkur.
Á námskeiðinu "Djúpslökun og hugleiðsla" er lögð áhersla á að þjálfa okkur í að slaka djúpt á og skapa friðsæld innra með okkur. Námskeiðið er reglulega í boði í Andartaki í Bústaðakirkju.
Guðrún - Darshan
Nánar hér: Djúpslökun, heilun og hugleiðsla
Andartak - jóga- og heilsustöð
gudrun@andartak.is
Bloggar | Breytt 9.4.2018 kl. 11:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Taktur hjartans
29.9.2016 | 14:13
Nú er komið haust og lífið að komast í skorður. Ég lagði af stað inn í haustið með skýrar fyrirætlanir um að leyfa sumarhvíldinni að fylgja mér inn í veturinn og að muna nú að láta ekki streituna ná tökum á mér. Það hefur gengið ágætlega hingað til en það gerist ekki alveg af sjálfu sér. Ég þarf að minna sjálfa mig á og taka mér stundir til að endurnærast bæði þegar lífið flæðir áreynslulaust og líka þegar álagið verður meira. Það gefur mér ekki bara frí frá amstrinu heldur líka innblástur og svör við spurningum mínum. Og þannig byggi ég líka upp sterkt ónæmiskerfi gagnvart neikvæðni og vantrú á sjálfa mig.
Það koma alltaf dagar sem ég gleymi mér og þar sem mér tekst ekki að halda í kyrrðina og lífskraftinn. Til dæmis ef ég er illa sofin eða hef ekki sinnt sjálfri mér - þá fer ég jafnvel að samsama mig með álaginu og finnast ég vera undir þrýstingi - að þetta og hitt verði að gerast strax - jafnvel þó ég sé í raun of þreytt eða úr takti við sjálfa mig til þess. Þá eiga neikvæðar hugsanir greiðari aðgang að mér og þá hætti ég að sjá og hugsa skýrt.
Hæfilegt magn af streitu er af hinu góða. Hún gefur okkur skýran fókus og hæfni til að bregðast við. En þegar streitan tekur völdin þá verður lífið svo bragðlaust og hugurinn lokast fyrir möguleikum og fegurð lífsins. Og þá er mjög auðvelt að missa móðinn. â¨â¨Þess vegna er svo mikilvægt að vera með stuðningsnet fyrir hamingjuna.
Mínar helstu endurnæringarleiðir eru jóga, hugleiðsla, gönguferðir í náttúrunni og sund. Og mér finnst mikilvægt að vera hluti af hóp sem styður mig. Að fara reglulega eitthvert þar sem ég sæki mér innblástur og að hafa það innbyggt í stundaskrána mína.
Þegar álagið er mikið þá þarf ég að geta sótt í eitthvað sem virkar hratt og örugglega. Þar finnst mér öndunaræfingar vera alveg ómissandi "endurlífgunartæki". Stutt stund,jafnvel bara þrjár til fimm mínútur af jafnvægisgefandi öndunaræfingum geta haft ótrúlega mikið að segja.
Jógaiðkun og hugleiðsla hafa á lengri tíma gefið mér mjög dýrmæta hluti - eins og meiri lífsorku og lífsgleði, bætt samskipti við mína nánustu og jákvæðara lífsviðhorf. Ég hef líka undanfarið verið að sjá mikilvægi þess að setja mér markmið og vera þannig í takti við það sem hjartað mitt dreymir og tilbúin að taka á móti framtíðinni þegar hún kemur.
Því er það ekki einmitt taktur hjartans sem gefur okkur líf?
Við í Andartaki erum að flytja okkur um set og verðum með námskeiðin okkar í Bústaðakirkju í vetur. Allir velkomnir!
Guðrún - Darshan
Andartak - jóga- og heilsustöð
gudrun@andartak.is
Bloggar | Breytt 18.4.2019 kl. 16:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Vorleysingar á huga og líkama
30.3.2016 | 14:33
Þó vetur konungur sé enn ekki farinn að gefa okkur mjög skýr merki um að hann ætli að fara að láta af völdum þá vitum við samt í hjarta okkar að vorið er á næsta leiti. Bjartir morgnar eru mjög kærkomnir eftir allt myrkrið og innan um snjóbreiðurnar má sjá í grænt gras sem heldur sjálfsagt að það sé að villast þegar það lítur í kringum sig. Sumir aðkomurunnar eru jafnvel farnir að bruma þó heimavönu birkinu finnist það sjálfsagt mjög glannalegt og óviturlegt.
En á meðan getum við að minnsta kosti farið í gönguferðir, hlustað eftir nýjum fuglahljóðum og látið okkur dreyma um vorið og sumarið. Þegar vorið bræðir veturinn nærumst við á birtunni og græna litnum - stundum fáum við ofbirtu í augun til að byrja með.
Þó við flest okkar tökum vorinu fagnandi þá getur verið átak að hrista af sér vetrardoðann og margir eiga erfitt með að taka á móti vorinu af sama krafti og hugurinn myndi óska sér. Það er ekki óalgengt að fólk fái kvef og alls kyns ofnæmiseinkenni á vorin og þunglyndi tekur stundum aukadýfu einmitt á vorin þegar síst varir.
Mér fannst það mjög gagnlegt þegar ég kynntist heildrænni visku jógafræðanna að heyra að þetta ætti sér eðlilegar skýringar. Jóga og systurvísindi þeirra ayurveda kenna okkur um mikilvægi þess að lifa í takti við okkur sjálf og árstíðirnar og hlusta á líkama, huga og sál. Þau fjalla um það hvernig veturinn getur safnast upp innra með okkur. Vetrinum fylgir kuldi og raki og við speglum þessa eiginleika innra með okkur. Við höfum tilhneigingu til að borða og sofa meira, sitja inni og búa okkur þannig til vetrarkápu til að einangra okkur gegn kuldanum. Á vorin þurfum við að varpa af okkur þessari kápu. Annars eigum við það á hættu að fá vorkvef og frjókornaofnæmi eða við gætum fundið fyrir framtaksleysi og tilfinningaþyngslum. Vetrinum fylgir ákveðinn drungi, dofi gagnvart lífinu og það geta myndast stíflur innra með okkur. Eins og í vorleysingum getur allt farið að losna þegar vorið birtist og stöku klakar geta strandað á steini úti í miðri á áður en þeir bráðna. Orkuflæðið okkar getur farið skrykkjótt af stað og drunginn getur verið búinn að koma sér þægilega fyrir og verið tregur að standa á fætur.
Á vorin þurfum við að hugsa sérstaklega vel um flæðið innra með okkur. Þegar við erum í jafnvægi finnum við styrk okkar og stöðugleika. Skortur á innra jafnvægi á vorin lýsir sér oft í því að við erum syfjuð eða með sljóan huga og jafnvel þunglynd. Það gæti líka fylgt því aukið slím í lungum eða kinnholum, ógleði og vatnssöfnun eða þungi í útlimum. Þeir sem þekkja til ayurveda kannast kannski við að þetta er lýsing á of miklu kaffa.
Í ayurveda er meðalið ekki bara eitthvað sem þú tekur inn heldur líka lífsstíll og taktur í deginum. Meðalið eða mótvægið fyrir vorið er þá að búa sér til takt og rútínu fyrir daginn sem hjálpar okkur að létta okkur líkamlega og tilfinningalega án þess að trufla stöðugleikann innra með okkur. Best er að nálgast þetta frá mörgum hliðum; borða létt fæði, hreyfa sig fara út í náttúruna. Jóga er mjög gagnlegt á þessum tíma og þá ekki síst öndunaræfingar og hugleiðsla. Í kundalini jóga er fullt af kríum sem hreyfa við orkunni og opna fyrir orkuflæðið.
Daglegar reglubundnar venjur eru nauðsynlegar til að halda góðri heilsu og til að okkur líði vel. Þær hjálpa okkur að lifa í takti við innbyggða líkamsklukku okkar og við náttúruna og að hlusta á okkur sjálf. Daglegar venjur gefa okkur sjálfstraust, sjálfsaga, innri frið, hamingju og langt líf.
Það er til dæmis himneskt að byrja daginn á að nudda líkamann upp úr olíu og fara svo í sturtu. Morgunganga eða örstutt jóga gefur okkur færi á að opna hugann fyrir nýjum degi og þeim tækifærum sem hann færir okkur. Og stutt hugleiðsla á eftir. Þriggja mínútna hugleiðsla hefur ótrúlega mikil áhrif ef hún er gerð daglega.
Létt hreinsun er af hinu góða. Og ekki síður að sleppa öllu þessu sem íþyngir okkur eins og gömul ágreiningsmál við aðra, sorgir sem við eigum eftir að vinna úr eða fyrirgefning sem bíður eftir að koma fram í dagsbirtuna. Við höfum tilhneigingu til að halda í gamlar sögur, oft erfiðu sögurnar okkar - að segja þær aftur og aftur og þannig halda þær áfram að lifa. Á þennan hátt erum við jafnvel að endurskapa þær. Það er mikill léttir að sleppa gömlum höftum.
Vorið er tími til að fæðast upp á nýtt og njóta þess að sjá lífið vakna í kringum okkur. Tími til að sá fræjum og skjóta rótum svo við getum nærst í gegnum sumarið og haldið stöðugleika okkar. Þetta er upplagður tími til að hreinsa líkamann og sleppa því sem við þurfum ekki á að halda lengur og koma okkur upp nýjum siðum sem þjóna okkur og næra.
Jákvæð hlið vorsins er kærleikur, samkennd og breytingar sem geta leitt af sér djúpa umbreytingu. Við getum notað vorið til að sá nýjum fræjum og tekið meðvitaða ákvörðun um að rækta með okkur gleði, samkennd og þakklæti og opnað þannig fyrir birtunni í hjartanu.
Andartak jóga og heilsustöð
gudrun@andartak.is
Bloggar | Breytt 21.10.2016 kl. 10:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Shakti dans
23.2.2016 | 10:42
Á undanförnum árum hafa sprottið upp ýmsar aðferðir sem spegla leit okkar að kjarnanum í okkur sjálfum mitt í öllu því áreiti og álagi sem við búum við. Við þurfum á því að halda að safna okkur saman og slaka á og um leið að gefa sköpunarkraftinum okkar lausan tauminn.
Shakti dans er form af dansi og jóga sem hefur notið vaxandi vinsælda víða um heim. Jóga sem hægt er að dansa við. Þetta form af dansjóga leiðir saman visku jógafræðanna annars vegar og skapandi dansflæði hins vegar. Með því að umbreyta dansi í jóga varð til form af jógaiðkun sem er full af skapandi lífsorku.
Dans fyrr og nú
Á vesturlöndum hefur dans aðallega verið stundaður sem afþreying og skemmtun, en í gegnum söguna hefur dans verið leið til að dýpka tenginguna við okkur sjálf og við hvort annað. Til að fagna og njóta samvista hvert við annað. Í Shakti dansi er hægt að snúa aftur til þessara djúpu samskipta og gleðinnar yfir að dansa. Hver tími er einstakur og þróast á sinn eigin hátt í skapandi flæði. Shakti dans eykur jafnvægi á milli sálar og líkama í gegnum flæðandi jógastöður og dans og hjálpar okkur að þróa vitund okkar og skilning á líkama, huga og tilfinningum.
Shakti dans á Íslandi
Við eru svo heppin að eiga von á Shakti danskennara frá Spáni í byrjun mars. Aragyua Simran Pal Kaur sem starfar ásamt því að kenna kundalini jóga og shakti dans sem dansari og líkamsmálari
Shakti dans var þróaður af Avtar Kaur sem er þjálfaður dansari og hefur kennt kundalini jóga í yfir 20 ár. Hún er auk þess söng- og leikkona og segist hafa dansað allt sitt líf. Hún hefur hlotið þjálfun í fimleikum, tai chi, chi gong, ballett, jassballett, salsa, austrænum -, indverskum og afrískum dansi og Shakti dans nærist á þessum ólíku hefðum hreyfingar. Avtar er fædd og uppalin í Englandi og búsett í Róm.
Shakti táknmynd sköpunarkraftsins
Shakti er táknmynd kvenorkunnar í jógafræðunum. Shakti stendur fyrir sköpunarorkuna í heiminum frumsköpunarkraft sálarinnar. Shakti þýðir orka, kraftur, hreyfing, breyting, náttúra. Öll sköpunin verður til í gegnum helgan andardrátt hennar. Hún tjáir sig í gegnum sálina okkar og í gegnum hin mörgu mismunandi form lífsins. Shiva er hliðstæða hennar í formi karlorku. Shiva er hin tæra vitund sem ekki breytist. Óendanleg, ósveigjanleg, vitni alls sem við upplifum.
Tvær hliðar á shakti
Í fornum Vedískum ritum er talað um hin mörgu form Shakti. Maya shakti er blæja blekkingarinnar og fær okkur til að týnast í dansi heimsins svo við gleymum uppruna okkar og uppsprettu. Við það týnum við líka sambandinu við okkur sjálf, tilganginn í lífinu og uppsprettu lífsorkunnar. Önnur hlið á Shakti er Cit Shakti ljós viskunnar, kraftur meðvitundarinnar sem býr í hjörtum okkar allra og hvetur okkur til þroska og andlegrar vakningar.
Að koma jafnvægi á orkubrautir í gegnum dans
Shakti dans hefur eins og kundalini jóga þann fókus að vekja og víkka út vitundina til þess að sálin nái að skína í gegn í daglegu lífi. Shakti dans fléttar saman austrænan og vestrænan dansstíl, bæði klassískan dans og nútímadans og um leið hvílir fókusinn á undirliggjandi lögmálum forms og hreyfingar. Mismunandi tjáning á geði eða innra veðri (bhavas) og hin ólíku form af dansi urðu þannig að aðgengilegum verkfærum til þess að velja á milli og sem hægt er að beita til að örva innri orku á nákvæman og jafnvægisgefandi hátt. Shakti dans opnar og kemur jafnvægi á fíngerðar orkubrautir líkamans í gegnum hreyfingu í takti við andardráttinn í flæðandi jógastöðum. Dansarinn öðlast hækkaða líkamsvitund og hugleiðsluástand ásamt tilfinningu fyrir léttleika, tærum huga og vellíðan.
Dans sem tjáning sálarinnar
Dans er eitt af tjáningarformum verundar okkar og getur verið eitt af hennar tærustu formum. Sálin skín í gegn þegar við erum mest í náinni snertingu við okkur sjálf. Þegar flæði líkamans er opnað í gegnum hreyfingu og vakandi athygli, þá verður dansinn að jóga. Þegar við losum um líkamlega spennu þá víkkar hugurinn sig út handan líkamans. Sofandi líkamshlutar vakna í krafti meðvitundar og orka tónlistar og tilfinninga flæðir á skapandi hátt í gegnum okkur. Með því að dýpka samband okkar við orkustöðvarnar vaknar hjá okkur næmni og fínleiki á hærri tíðni en áður. Líkaminn verður þannig að hljóðfæri sem Guðlega sjálfið okkar tjáir sig í gegnum.
Guðrún Arnalds - Darshan - gudrun@andartak.is
Andartak - jóga- og heilsustöð
Bloggar | Breytt 21.10.2016 kl. 10:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Heilandi viska ayurveda og jóga
20.1.2016 | 08:13
Jóga og ayurveda eru systurvísindi - bæði upprunnin frá Indlandi og hafa þrátt fyrir háan aldur náð að afla sér mikilla vinsælda á vesturlöndum.
Jóga er leið til að tengja við birtuna innra með okkur og gefa henni rými. Nokkuð sem er mjög mikilvægt og dýrmætt einmitt núna í skammdeginu. Jóga gefur okkur verkfæri til þess að hlúa að okkur sjálfum og efla innri styrk.
Kundalini jóga getur stutt okkur í því að velja það sem nærir okkur í stað þess að leyfa huganum að ráða. Það getur hjálpað iðkendum að umbreyta neikvæðum hugsunum og mynstrum sem hindra þá í lífinu og koma sér upp heilbrigðari venjum og hugmyndum um sjálfa sig.
Ayurveda byggir á heildrænni sýn á manneskjuna og náttúruna og sýnir okkur hvernig maður og náttúra eru fléttuð saman í eina heild. Samkvæmt vísindum ayurveda eru frumöflin fimm jörð, vatn, eldur, loft og ljósvaki (eter) til staðar í okkur öllum. Eldurinn sem brennur innan í jörðinni er lika í maganum á okkur, jörðin sem veitir líf er líka hluti af okkur, loftið umhverfis okkur er líka innra með okkur. Þessi fimm frumefni birtast í okkur í 3 megin orkuformum; VATA, PITTA OG KAFFA.
Vata er til sem allt loftið sem við geymum í tómum rýmum í líkamanum. Vata gefur okkur hreyfingu og jafnvægi bæði á huga, líkama og tilfinningar, aðlögunarhæfni, sköpun, áhuga og skilning.
Pitta þýðir kraftur meltingarinnar eða hitans það sem fær hluti til að þroskast og meltast. Pitta hjálpar okkur að melta bæði mat, hugmyndir og tilfinningar og gefur okkur gáfur, hugrekki og lífsorku.
Kaffa er það sem fær hluti til að loða saman og er líkamlegt ílát fyrir pitta og vata eða orku og hita. Kaffa gefur okkur tilfinningu og tilfinningar, ást og umhyggju og tengir okkur við aðra. Kaffa hjálpar okkur að halda í það sem við höfum eignast eða framkvæmt.
Hver manneskja er með sitt persónulega jafnvægi milli VATA, PITTA OG KAFFA. Það sem við borðum, drekkum, hugsum, hvernig daglegur taktur okkar er; allt þetta og margt fleira hefur áhrif á þetta jafnvægi. Með því að læra að þekkja grunnlíkamsgerð okkar og hvað við þurfum að gera til að halda jafnvægi getum við sjálf skapað okkur heilbrigðan líkama og hamingjusama sál.
Jafnvægi: Við erum eins og þrífótur líkami, hugur og sál. Í vestrænum lækningum erum við með mismunandi lækna fyrir hvern líkamshluta. Hjartalæknirinn spyr okkur um kólesteról ekki ástarmálin okkar. Ayurvedalæknirinn meðhöndlar alltaf heildina og sjúkdómsgreiningin er alltaf sú sama: Ójafnvægi. Það eru tvær megin ástæður fyrir ójafnvægi; ytri aðstæður árstíðarbreytingar, mengun, sýking. Innri aðstæður streita, tilfinningaójafnvægi, ójafnvægi í meltingu. Ytri aðstæður hafa ekki eins mikil áhrif ef við pössum upp á innri aðstæður.
Janúar er góður tími til að hlúa að þvi sem við höfum og skapa okkur nýja framtíð. Til þess að taka á móti nýjum venjum þurfum við að sleppa þeim gömlu sem oft getur verið átak. Ef við sjáum fyrir okkur að við séum að skuldbinda okkur til að sinna okkar eigin vellíðan, hamingju og tilgangi í lífinu þá verður það mun auðveldara en að hugsa um það sem okkur finnst neikvætt og þarfnast breytinga. Ef við viljum njóta lífsins í krefjandi heimi nútímans er gagnlegt að horfa heildrænt á okkur sjálf og finna leiðir sem styrkja okkur í heild - ekki bara einstaka parta.
Guðrún Arnalds - Darshan - gudrun@andartak.is
Námskeiðið "Heilandi viska Ayurveda og jóga"
Bloggar | Breytt 21.10.2016 kl. 10:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Dansaðu, lifðu, hlæðu, elskaðu - og slakaðu á.
13.10.2015 | 18:42
Nú er haustið byrjað að feykja okkur eins og laufum í vindi inn í gula og rauða litadýrð og blauta rigningadaga. Lífið er að komast í fastar skorður aftur eftir langa daga sumarsins. Mér finnst svo stutt síðan ég byrjaði að forrækta grænmeti í eldhúsglugganum mínum og beið eftir vorinu með fiðrildi í maganum. Núna andartaki síðar er ég að borða af allsnægtum jarðarinnar gulræturnar sem eru svo sætar og ég verð að hafa mig alla við að koma brokkolíinu ofan í fjölskylduna mína áður en það vex úr sér og fer að blómstra. Um leið og ég þakka fyrir alla þessa gnægt reyni ég að leyfa ekki leiðanum yfir að sumarið skuli vera búið að yfirgnæfa þakklætisröddina. Þakklæti er svo yfirmáta gefandi tilfinning.
Á þessum árstíma er veðrið enn breytilegra en venjulega og meiri þörf á að hlúa vel að okkur svo við stöndum af okkur haustkvef og flensur - og streitupúkann. Það er líka svo mikilvægt að muna að hlæja og geyma sumarsólina áfram í hjartanu svo við getum lýst okkur sjálfum í gegnum veturinn. Ég hef verið að vanda mig alveg sérstaklega við það þetta haustið að láta ekki daglegt amstur og streitu verða of hávær - og að halda í friðinn í hjartanu hvað sem á dynur. Það hefur gengið nokkuð vel hingað til. Og hæfilegt magn af streitu er jú bara af því góða. En ég þarf að vera mjög vakandi. Það er svo auðvelt að fara að trúa því að þetta bara verði að gerast núna þrátt fyrir að ég sé þreytt og hafi enga orku í að leysa verkið af hendi. En þannig hefur streitupúkinn oft náð að plata mig út í tóma vitleysu og áður en ég veit af er tankurinn tómur og ég hætti að geta sofið vel.
Ég er búin að vera að hugleiða það vandlega í sumar hvað það er sem gefur mér gleði. Hvernig ég missi sambandið við uppsprettuna innra með mér um leið og ég leyfi álaginu og þar með hávaðanum í huganum að komast upp fyrir ákveðinn styrk. Og af því ég kenni jóga þá er ég svo meðvituð um að ég vil vera jákvæð fyrirmynd og þegar ég er það ekki finnst mér ég ekki alveg vera heil í því sem ég er að gera. Ég finn það svo sterkt hvernig ég verð að vera í sambandi við þorstann eftir sálinni minni til þess að finnast ég vera á lífi. Ég verð að trúa á það sem ég er að gera og gera það af heilu hjarta. Um leið og ég er hálfshugar og nýt þess ekki alveg að vera ég þá dofnar aðeins ljósið innra með mér og ég fer að missa tengslin við uppsprettuna sem nærir mig.
Þegar tankurinn verður tómur þá getur orðið til vítahringur þar sem ég fer að keyra áfram á adrenalíni í stað lífsorku. Þá fer ég að leita í sykur eða einhvers konar spennu - eitthvað sem gefur mér falska tilfinningu fyrir orku en sem í raun gengur enn meira á orkutankinn minn. Sumir leita í kaffi og sjónvarp og rifrildi geta líka verið afleiðingin þegar tankurinn verður tómur. Í jóga lærum við að hlaða batteríin í gegnum öndunaræfingar, jóga, djúpa slökun og hugleiðslu.
Kundalini jóga sem er það form af jóga sem ég stunda og kenni býr yfir miklum fjársjóði af visku sem kennir okkur hvernig við getum lifað og tekist á við álag og haldið orkuflæðinu opnu. Ég þekki ekki neina leið sem virkar jafn hratt og kröftuglega og kundalini jóga. Galdurinn liggur í að opna kistuna og láta hana ekki bara liggja þarna ónýtta. Hver sem þín fjársjóðskista er skora ég á þig að hafa hana áfram opna.
Guðrún Arnalds - Darshan / gudrun@andartak.is
Jóga- og heilsustöðin Andartak
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Er þinn hugur ótaminn eða takmarkalaus?
24.3.2015 | 16:53
Þekkir þú þinn eigin huga? Kanntu að hafa hemil á honum? Veistu að meirihluta fólks skortir virkt og meðvitað samband við eigin huga? Og veistu að ef þú ert ekki með meðvitað samband við hugann þá er það hugurinn sem stjórnar þér - ekki öfugt?
Það þýðir að ef þér gengur illa að glíma við einhverja venju sem er farin að hafa neikvæð áhrif á líf þitt þá er það hugurinn sem er búinn að taka völdin og þú ert ekki lengur við stjórnvölinn. Og það veldur því að þú kannski reiðist óvænt án þess að ætla það eða þú fyllist af kvíða við ákveðnar aðstæður eða kannski finnst þér lífið erfitt og alvörugefið. Þá er það reiðigusan, kvíðahnúturinn eða alvarleiki lífsins sem velja þig. Það ert ekki þú sem velur heldur hugurinn.
Hugleiðsla kennir okkur að byggja upp virkt samband við hugann. Og þá getum við farið að velja meira hvernig okkur líður, við hvað hugurinn dvelur og við getum farið að velja okkar eigin viðbrögð.
Hugurinn er eins og ótaminn hundur sem snuðrar um allt og er alltaf forvitinn. Ef við ákveðum að eignast hund þá þurfum við að þjálfa hann ef við eigum ekki að sitja uppi með hömlulausan hund sem geltir á allt og alla, Á sama hátt þurfum við að læra að temja hugann okkar ef hann á að geta starfað fyrir okkur á jákvæðan og uppbyggjandi hátt.
Hugurinn er margbrotið og heillandi fyrirbæri. Hann er stærsti fjársjóðurinn sem þú átt og hann býr yfir óendanlegum möguleikum. Ef þú lærir að eiga sterkt samband við hugann þá áttu þar öflugra tæki en þú getur ímyndað þér - og sem getur skapað þér bæði hamingju og velsæld eða bara hvað sem þú vilt.
Undanfarna mánuði höfum við í jóga- og heilsustöðinni Andartak boðið fólki að hugleiða með okkur - heima og eða í Andartaki og styðja þannig þá sem vilja koma sér upp daglegri hugleiðslu.
Nú er að byrja ný fjörutíu daga hugleiðsla hjá okkur og allir velkomnir að taka þátt. Hvort sem þú ert iðkandi í Andartaki eða ekki ertu velkomin-n að koma og hefja hugleiðsluna með okkur og fá leiðbeiningar til að halda áfram.
Guðrún Darshan, jógakennari og hómópati
Jóga- og heilsustöðin Andartak
gudrun@andartak.is
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)