Vorhreinsun
25.4.2022 | 12:55
Vorið er endurfæðing náttúrunnar. Um leið og náttúran byrjar að senda græna sprota upp úr moldinni býður hún okkur líka að endurnýja samband okkar við lífið. Við getum gert þetta í gegn um líkamlega hreinsun, gegn um tiltekt í huganum og í viðhorfum okkar til lífsins. Við getum skoðað venjurnar okkar, hverju við getum sleppt og hvernig við getum betur nært okkur sjálf. Vorið er dásamlegur tími til að endurnærast og til að endurnýja skuldbindingu okkar við okkur sjálf, við heilsu og hamingju.
Einföld vorhreinsun getur verið til dæmis að borða léttara fæði og hjálpa okkur þannig að taka léttari á móti sumrinu. Það eru ýmis te sem geta stutt okkur í að létta á líkamskerfunum, eins og Tulsi te, sem er mjög nærandi fyrir taugakerfið og hreinsar blóðið, Fennel og Engifer styðja við meltinguna og hjálpa okkur að næra meltingareldinn. Svo er líka hægt að taka þetta einu skrefi lengra og fasta eða taka eina viku þar sem við borðum Kitchari, sem er búið til úr mungbaunum og hrísgrjónum. Hér má finna uppskrift: Kitchari. Tilgangurinn með því að borða léttara fæði er að þá fer ekki eins mikil orka í meltinguna og líkaminn getur notað þessa orku til að endurnýja og byggja upp styrk. Lifrin fær hvíld sem aftur getur dregið úr pirringi og létt á skapinu.
Allt ójafnvægi byrjar í huganum. Hugurinn er í raun hluti af líkamanum, ekki aðskilinn. Allt sem við gerum til að létta á líkamanum hefur áhrif á hugann og öfugt. Regluleg hugleiðsla og jógaiðkun er ein besta gjöfin sem við getum gefið okkur sjálfum til að styðja við innra jafnvægi. Dagleg hugleiðsla getur verið allt frá þremur mínútum. þriggja mínútna hugleiðsla, ef hún er gerð daglega, getur haft mjög djúp áhrif á huga og líkama. Og svo er alltaf hægt að lengja smám saman. Þegar við finnum áhrifin þá fer okkur oft að langa til að lengja hana.
Á námskeiðinu Vorið kallar, færðu stuðning við að hreinsa og létta á huga og líkama og við að koma sér upp daglegri hugleiðslu. Auk þess sem við gerum jógaæfingar sem styðja við hreinsun og endurnæringu.
Nánar hér: Vorið kallar!
Guðrún Arnalds, jógakennari, hómópati og leiðbeinandi í Fókusing, aðferð til að hlusta á visku líkamans.
andartak@andartak.is
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 13:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Upplyftandi vorvenjur
4.4.2022 | 13:40
Vorið er tími töfra og umbreytinga. Náttúran kemur úr klakaböndum og köldum raka vetrarins og inn í vorið. Lífspúlsinn tekur kipp, jörðin fer að hlýna og grænir sprotar taka að teygja sig upp á móti ljósinu.
Náttúran virðist eiga svo auðvelt með þetta en fyrir okkur manneskjurnar er það oft ekki eins áreynslulaust að taka á móti nýjum árstíðum. Ferðalagið úr vetri yfir í vor getur tekið sérstaklega á. Oft finnum við fyrir þunga og drunga eins og úrillur björn sem kemur hikandi út úr vetrarhýðinu.
Jóga og ayurveda, systurvísindi jógafræðanna og elsta heilunarkerfi heimsins, sýna okkur að lykillinn að því að halda í taktinn við náttúruna er að fylgja hennar fordæmi og dansa í sama takti. Hér eru nokkur góð ráð úr viskubrunni ayurveda og jóga.
Taktu daginn snemma. Eitt það besta sem við getum gert fyrir okkur sjálf á vorin er að vakna snemma og taka inn létta og tæra orku morgunsins. Og byrja þannig að létta á þunga og drunga vetrarins.
Fáðu hreyfingu á orkuflæðið. Hressandi gönguferð, sundsprettur eða kraftmikið jóga kemur orkunni í farveg. Góður tími til að hreyfa sig er milli 6 og 10 á morgnana og kvöldin. Öndunaræfingar eru eitt það besta sem við getum gert til að vekja lífsorkuna. Og til að losa um staðnað orkuflæði og slím úr lungunum.
Borðaðu létt. Á veturna sækjum við í að borða fæðu sem vegur upp á móti þurrum og léttum eiginleikum kuldans. Á vorin þurfum við að létta fæðið og gefa meltingunni rými til að virkja krafta sína. Grænt og ferskt er málið. Og létt grjón eins og kínóa, bygg og hirsi. Í jóga tölum við um að tendra meltingareldinn. Hann getur verið sérstaklega viðkvæmur á vorin og haustin og mikilvægt að hlúa að honum og gefa honum frí inn á milli.
Sæktu innblástur í náttúruna. Náttúran er svo góður kennari. Við getum lært mikið af því að fylgjast með henni vakna úr dvala. Vorið er upplagður tími til að að leita inn á við og gefa rými fyrir ný fræ, nýjar venjur, nýjar hugmyndir og endurnærandi stundir. Og til að fara út og horfa á brumið vakna á trjánum og litina fjölga sér í umhverfinu.
Guðrún Arnalds, jógakennari, hómópati og leiðbeinandi í Fókusing, aðferð til að hlusta á visku líkamans.
andartak@andartak.is
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 13:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)